Fullt var út úr dyrum þegar opnunarhóf sviðslistahátíðarinnar Everybody's Spectacular var haldið í Mengi í gær, miðvikudag. Íslenskir listunnendur sem hafa beðið spenntir eftir hátíðinni fjölmenntu í Mengi og að sjálfsögðu lét Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, sig ekki vanta í partíið.
Hvítum stuttermabolum með textaáletrun eins og „fjandans feðraveldið“ var kastað til gesta og fór Guðni heim með að minnsta kosti tvo boli.
Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin í nóvember en hingað til hafa Lókal og Reykjavík Dance Festival haldið hana í ágúst. Fjölmargir íslenskir og erlendir listamenn koma fram á hátíðinni sem lýkur á sunnudaginn.