Leikfimidrottningin Anna Eiríksdóttir deildarstjóri í Hreyfingu fagnaði 40 ára afmæli sínu með stæl í gær á Vox home. Í leiðinni opnaði hún sinn eigin vef, annaeiriks.is, þar sem hún mun bjóða upp á þjálfun, uppskriftir og heilsutengda pistla. Um 200 konur fögnuðu með Önnu á þessum tímamótum.
Magnús Scheving var veislustjóri í afmælinu og reitti hann af sér brandarana og lét konurnar hreyfa sig örlítið.
Söngvarinn Friðrik Dór mætti óvænt í afmælið en hann var gjöf frá Eðalkonum, sem Anna þjálfar. Svo koma Ragnheiður Gröndal og söng nokkur lög.