Kvikmynd Ísoldar Uggadóttur, Andið eðlilega, var frumsýnd í Háskólabíói í gær. Troðfullur salur var nokkuð ánægður með útkomuna. Leikstjórinn skartaði sínu fegursta á frumsýningunni í glansandi kjól úr Geysi.
Kvikmyndin fjallar um einstæða móður sem er á hrakhólum með son sinn eftir að rukkunarbréfin hrúgast inn um lúguna hjá henni. Í allri eymdinni fær hún vinnu sem á eftir að breyta lífi hennar en í gegnum vinnuna hnýtur hún um hælisleitanda sem stoppaður er á leið til landsins. Í framhaldinu tvinnast tilvist þeirra saman.
Eftir frumsýninguna í Háskólabíó var boðið í teiti á Bryggjan brugghús.