Siggi Hlö hélt upp á 50 ára afmæli sitt Kletti, nýju og glæsilegu húsi Golfklúbbs Mosfellsbæjar.150 manns mættu í 80´s þema í anda afmælisbarnsins og eins og sjá má á myndunum lögðu margir mikinn metnað í búningana. Veislustjórn var í höndum DF Fox. Hreimur, Geir Ólafs og Herbert Guðmundsson tóku að sjálfsögðu lagið, Valli Sport var í beinni útsendingu á tjaldi frá Vilnius í Litháen með ræðu og Rúni Russel frá Manchester. Pylsupartý að hætti Bæjarins Bestu og Kiddi Bigfoot hélt öllum gangandi langt fram á nótt með bestu 80´s slagarana.
„Já þetta var stórkostlegt. Að vera með sínum vinum og fagna lífinu er það sem maður á að lifa fyrir. Það mun ekki standa á legsteininum mínum „ég dó úr leiðindum“.“ sagði Siggi um veisluna.