Það var mikil stemning þegar The Irishman Pub var opnaður á fimmtudaginn í síðustu viku. The Irishman Pub er á Klapparstíg 25-27 og er líkt og nafnið gefur til kynna nýr staður með írsku þema. Fjölmennt var á opnun staðarins, en staðurinn er einstaklega fallega innréttaður. Eigendur staðarins eru engir nýgræðingar þegar kemur að veitingastaðageiranum, en þeir Óli Már, Logi, Andri Björn og Arnar Þór standa að opnun The Irishman Pub. Þeir eiga meðal annars staðina Kol, English Pub, Bastard, Lebowski Bar og Den Danske Kro.