Gleðin var allsráðandi hjá starfsfólki upplýsingatæknifyrirtækisins Origo þegar það hélt sitt árlega haustmót, sem að þessu sinni var í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Starfsfólk fyrirtækisins stillti saman strengi eftir sumarfrí fyrir komandi vetur.
„Haustmótið í ár er örugglega það best heppnaða hjá okkur. Við fórum í stutta stefnumótun á haustmótinu þar sem niðurstaðan var meðal annars að leggja enn meiri áherslu á þjónustu, auka snerpu og vera ávallt til taks fyrir viðskiptavini,“ segir Dröfn Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Origo.
Origo varð til þegar Nýherji, Applicon og TM Software sameinuðust en þar starfa 450 sérfræðingar í upplýsingatækni.