Aron hélt ræðu og táraðist

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, og eiginkona hans, Kristbjörg Jónasdóttir einkaþjálfari, komu sérstaklega til landsins til að kynna bókina, Aron - Sagan mín, sem kom út í síðustu viku. Í tilefni af útkomu bókarinnar var slegið upp teiti á Kornhlöðunni.

Í bókinni opnar Aron Einar sig upp á gátt en brot úr bókinni hafa ratað í fréttir á síðustu vikum og mun hún væntanlega rata í marga jólapakka fyrir þessi jólin.

Aron hélt hjartnæma ræðu fyrir gesti og táraðist þegar hann þakkaði fjölskyldu og vinum fyrir stuðninginn í gegnum árin. „Eins og þið sjáið er ég ekki mikill ræðumaður. Sem betur fer er ég bara fótboltamaður,“ sagði Aron og uppskar mikinn hlátur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál