Hrefna Sætran hélt geggjað partí

Útgáfu bókarinnar Grillmarkaðarins eftir Hrefnu Rósu Sætran var fagnað að viðstöddu miklu fjölmenni á samnefndum stað. Fyrstu 50 sem keyptu bókina fengu merki Grillmarkaðarins brennimerkta á forsíðuna og seldust þau eintök fljótt upp. Boðið var upp á girnilegar veitingar úr bókinni sem er óður til Grillmarkaðarins. Hún er sett upp á sama hátt og ferðalag um veitingastaðinn og á síðum hennar má finna vinsælustu rétti staðarins í bland við uppáhaldsrétti Hrefnu Rósu Sætran. Hún inniheldur sígilda rétti sem hafa horfið af matseðlinum þannig að fastakúnnar Grillmarkaðarins geta glaðst við að finna gamla kunningja á síðum hennar og geta prófað sig áfram í eldhúsinu heima.

„Við stofnuðum Grillmarkaðinn árið 2011 og höfum verið svo lánsöm að hann hefur verið meðal vinsælustu veitingastaða landsins síðan. Við lögðum mikla vinnu í að staðurinn sjálfur og matseðillinn væri í takt við íslenskt landslag og notum mikið þau hráefni sem eru okkur innan handar í drykki og mat,“ segir Hrefna Rósa Sætran og bætir við:

„Við leggjum áherslu á að bjóða upp á eins ferskt hráefni og völ er á og að þau komi beint frá bændum. Þess vegna erum við í samstarfi við fjölda íslenskra bænda sem leggja stund á fjölbreytta framleiðslu og búskap. Við viljum að fólk geti gengið að því vísu að hráefnið sé það besta sem völ er á þegar það kemur að borða á Grillmarkaðnum. Við undirbúum svo hráefnið af natni og umhyggju, bæði fyrir náttúrunni, bragðlaukunum og hefðinni.“

Grillmarkaðurinn inniheldur hátt í 70 girnilegar uppskriftir af samnefndum veitingastað. Bókin kemur út bæði á íslensku og ensku og Salka gefur út. Björn Árnason ljósmyndaði og útkoman er einstök.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál