Fjölmennt var á aðventugleði kvenna í iðnaði sem Samtök iðnaðarins buðu til nýverið á Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica. Ánægja var meðal kvennanna að fá tækifæri til að kynnast, spjalla og sýna drifkraftinn sem konur í iðnaði búa yfir.
Dagskráin hófst á því að Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins, bauð gesti velkomna. Þá flutti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarp. Margrét Júlíana Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Rosamosa, sagði frá uppbyggingu síns fyrirtækis og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, var með ávarp. Í lok dagskrár var boðið upp á tónlistaratriði þar sem Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson fluttu nokkur lög. Boðið var upp á léttar veitingar.
Konur í iðnaði efldu tengslin á aðventuhátíð.
Ljósmynd/Aðsend
Jóhanna Vigdís Arnardóttir ásamt gestum á aðventuhátíð Samtaka iðnaðarins.
Ljósmynd/Aðsend
Sigurrós Pálsdóttir, Margrét Júlíana Sigurðardóttir og Íris Ólafsdóttir stofnandi Kúla 3D.
Ljósmynd/Aðsend
Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Samtaka iðnaðarins bauð gesti velkomna.
Ljósmynd/Aðsend
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra flutti ávarp á aðventugleðinni.
Ljósmynd/Aðsend
Margrét Júlíana Sigurðardóttir framkvæmdastjóri Rosamosa.
Ljósmynd/Aðsend
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir var með tónlistaratriði á aðventuskemmtuninni.
Ljósmynd/Aðsend
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Davíð Sigurgeirsson fluttu nokkur lög.
Ljósmynd/Aðsend
Margrét Kristín Sigurðardóttir almannatengsla- og samskiptastjóri Samtaka iðnaðarins.
Ljósmynd/Aðsend
Guðrún Hafsteinsdóttir ásamt Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra.
Ljósmynd/Aðsend
Konur í iðnaði efla tengslin.
Ljósmynd/Aðsend
Konur í iðnaði efla tengslin.
Ljósmynd/Aðsend
Fjölmennt var á aðventugleðinni.
Ljósmynd/Aðsend
Konur í iðnaði starfa m.a. í kvikmyndaiðnaði, byggingariðnaði, í hugverka- og framleiðslugreinum svo dæmi séu tekin.
Ljósmynd/Aðsend
Sigrún Lára Shanko hjá Shan.jpg ásamt gesti á aðventugleðinni.
Ljósmynd/Aðsend