Þekktir Íslendingar kunna að fagna nýju ári

Arnar Sigurðsson, Björgólfur Thor, Þorsteinn Bachmann og Erik Hirt fögnuðu …
Arnar Sigurðsson, Björgólfur Thor, Þorsteinn Bachmann og Erik Hirt fögnuðu nýju ári á heimili vinar síns, Guðjóns í Oz, árið 2000. mbl.is/Jón Svavarsson

Íslendingar kunna að skemmta sér og eru áramótapartý þeirra heimsfræg. Í upphafi aldarinnar kvöddu þekktir Íslendingar gamla árið með með stæl og tóku fagnandi á móti árinu 2000 í heimahúsum sem og á skemmtistöðum eins gamlar myndir sýna. 

Margir muna eftir Hvíta partýinu sem Guðjón í Oz hélt eftirminnilega. Þar skemmtu sér saman fólk úr viðskiptaheiminum sem og listafólk. Björgólfur Thor var til dæmis flottur í hvítum skipstjórafötum með Þorsteini Bachmann sem átti nokkrum árum seinna eftir að túlka fjárfestinn í áramótaskaupinu. 

Ljósmyndari Morgunblaðsins fangaði stemminguna á frábæran hátt í upphafi aldarinnar. 

Margrét Friðriksdóttir og Aron Hjartarson áttu góða stund saman í …
Margrét Friðriksdóttir og Aron Hjartarson áttu góða stund saman í veislu Guðjóns í Oz. mbl.is/Jón Svavarsson
Leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir skemmti sér konuglega í Eldhúsinu ásamt vinum …
Leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir skemmti sér konuglega í Eldhúsinu ásamt vinum sínum þeim Pétri Jónassyni, Hrafnhildi Hagalín og Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur. mbl.is/Jón Svavarsson
Eyþór Arnalds, Móeiður Júníusdóttir og Kristinn Júníusson voru kampakát í …
Eyþór Arnalds, Móeiður Júníusdóttir og Kristinn Júníusson voru kampakát í nýjarsfagnaði árið 2000. mbl.is/Jón Svavarsson
Guðfinna og Birna Björnsdætur voru í góðum gír í Iðnó …
Guðfinna og Birna Björnsdætur voru í góðum gír í Iðnó á gamlárskvöld árið 2000. mbl.is/Jón Svavarsson
Tinna Hrafnsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Brynja Valdís Gísladóttir og Jón …
Tinna Hrafnsdóttir, Stefán Karl Stefánsson, Brynja Valdís Gísladóttir og Jón Arnar Guðbrandsson fögnuðu í Iðnó. mbl.is/Jón Svavarsson
Félagarnir Karl Pétur Jónsson, Sonja Dögg Pálsdóttir, Anna Sigríður Arnardóttir …
Félagarnir Karl Pétur Jónsson, Sonja Dögg Pálsdóttir, Anna Sigríður Arnardóttir og Pétur Blöndal skemmtu sér vel í Iðnó. mbl.is/Jón Svavarsson
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi borgarstjóri skemmti sér í Perlunni á …
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi borgarstjóri skemmti sér í Perlunni á gamlárs ásamt eiginmanni sínum, Hjörleifi Sveinbjörnssyni, Helgu Jónsdóttur og Helga H. Jónssyni. mbl.is/Jón Svavarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál