Það var mikil stemming í Kassanum í Þjóðleikhúsinu á laugardagskvöldið þegar leikkonan María Thelma Smáradóttir frumsýndi verkið Velkomin heim með leikhópnum Trigger Warning. Sýningin hreyfði við áhorfendum og mátti sjá fólk þurrka tár og sjúga upp í nef. Eftir sýningu var þó öllu léttari stemming þar sem boðið var upp á vorrúllur og karókí.
Í sýningunni segir María Thelma, sem á taílenska móður og íslenskan föður, frá því hvernig er að alast upp sem blönduð stúlka á Íslandi. Einnig fer hún yfir einstaka ævi móður sinnar, Völu Rúnar, sem fæddist föðurlaus á hrísgrjónaakri í Taílandi um miðja 20. öldina og missti móður sína sex ára.
Apríl Harpa systir Maríu Thelmu mætti ásamt vinkonu þeirra Elínu Kristjánsdóttur.
mbl.is/Stella Andrea
Kara Hergils meðhöfundur og annar leikstjóri verksins og María Hergils.
mbl.is/Stella Andrea
Jónas Reynir Gunnarsson, Hulda Katarína Sveinsdóttir og Hjálmar Kakali Baldursson.
mbl.is/Stella Andrea
Björn Jónsson og Hallfríður Kristinsdóttir.
mbl.is/Stella Andrea
Sigríður Jónsdóttir og Anna María Tómasdóttir.
mbl.is/Stella Andrea
Margrét Sigríður Þórisdóttir og Birgir Ingvarsson.
mbl.is/Stella Andrea
Svanhildur Steinarsdóttir og Guðmundur Kári Kárason.
mbl.is/Stella Andrea
Valdimar Jóhannesson, Valgerður Valsdóttir og Vilborg Bjarnadóttir.
mbl.is/Stella Andrea
Geirfinnur Smári og Marín Hergils.
mbl.is/Stella Andrea
Sigríður Lovísa, Davíð Torini og Margrét Gústafsdóttir.
mbl.is/Stella Andrea
Silja Aðalsteinsdóttir og Gunnar Karlsson.
mbl.is/Stella Andrea
Kristín Helga Viggós og Sigurlaug Halldórsdóttir.
mbl.is/Stella Andrea
Anna Kolfinna Kuran, Tinna Sverrisdóttir, Elín Signý Ragnarsdóttir og Guðrún Selma Sigurjónsdóttir.
mbl.is/Stella Andrea