Hafdís Jónsdóttir og Björn Leifsson eigendur World Class líkamsræktarstöðvarinnar kunna að búa til stemningu. Það sást best í gærkvöldi þegar World Class hélt árshátíð sína í Hafnarhúsinu. Hafdís, eða Dísa eins og hún er kölluð, klæddist glæsilegum kjól sem hún keypti á Spáni og var Björn í dökkum jakkafötum með slaufu.
Starfsmenn og makar mættu í sínu fínasta pússi á árshátíðina og var öllu tjaldað til. Eins og sést á myndunum voru allir í toppformi þetta kvöld, bæði andlega og líkamlega. Hægt er að skoða fleira myndir á Instagram undir #worldclassgala