Gleðin var við völd í Smárabíói í gær þegar heimildaþáttaröðin Ást var kynnt með því að sýna fyrsta þáttinn.
Þættirnir fjalla með einlægum hætti um rómantík, sambönd, skilnað og allt þar á milli. Þeir eru framleiddir hjá Sagafilm og leikstjóri er Haukur Björgvinsson. Ást byggist á hugmyndum Kolbrúnar Pálínu Helgadóttur og Kristborgar Bóelar Steindórsdóttur. Þáttaröðin kemur í heild sinni á morgun í Sjónvarp Símans Premium.