Glassriver og Síminn forsýndu fyrstu tvo þættina í nýrri þáttaröð af Venjulegu fólki í Egilshöll í vikunni. Meðal viðstaddra voru framleiðendur, leikarar, aðrir aðstandendur þáttanna.
Venjulegt fólk fjallar um allt það drama sem fylgir lífsgæðakapphlaupi tveggja vinkvenna. Haldið er áfram þar sem frá var horfið og fylgst með vandræðum sem Vala, Júlíana, Tommi og Arnar hafa komið sér í síðan í fyrstu þáttaröðinni.
Með aðalhlutverk fara Vala Kristín, Júlíana Sara, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari Sveinssyni en hann leikstýrir einnig þáttunum. Öll þáttaröðin er aðgengileg í Sjónvarpi Símans Premium.