Kolfinna Von og Björn Ingi mættu með börnin

Kolfinna Von Arnardóttir og Björn Ingi Hrafnsson mættu með börnin …
Kolfinna Von Arnardóttir og Björn Ingi Hrafnsson mættu með börnin í útgáfuhófið. Ljósmynd/HAG

Það var margt um manninn og glatt á hjalla þegar Sólveig Pálsdóttir, rithöfundur og bæjarlistamaður Seltjarnarness, fagnaði útgáfu fimmtu bókar sinnar sem ber heitið Fjötrar. Gleðskapurinn fór fram í Sjávarklasanum og vel á annað hundruð manns lögðu leið sína út á Granda til að samfagna með höfundinum. Þeirra á meðal var rjóminn af glæpasagnahöfundum landsins en Yrsa Sigurðardóttir, Lilja Sigurðardóttir og Óskar Guðmundsson nældu sér öll í eintak í veislunni. Mikil eftirvænting ríkti greinilega eftir nýrri bók frá Sólveigu og sást til nokkurra veislugesta hefja þegar í stað lesturinn þrátt fyrir margmennið í teitinu. Þagað mættu líka Björn Ingi Hrafnsson og Kolfinna Von Arnardóttir. 

Fjötrar segja frá konu sem finnst látin í klefa sínum í fangelsinu á Hólmsheiði. Guðgeir og félagar hans rannsaka málið sem reynist hafa ótal þræði og teygja anga sína víða, alla leið til stóra skjálftans um aldamótin þar sem ungur maður hvarf sporlaust. Lögreglan stendur frammi fyrir stórum spurningum og kynnist hversu langt fólk er tilbúið að ganga til að viðhalda ákveðinni mynd af sér út á við og hvers fjölskyldur eru megnugar til að vernda leyndarmál sín.

Sólveig Pálsdóttir er leikkona og starfaði lengi við leiklist og kennslu í framhaldsskóla áður en hún sneri sér alfarið að ritstörfum. Fjötrar er fimmta bók Sólveigar Pálsdóttur sem fagnaði sextugsafmælinu sínu á dögunum. Bækur Sólveigar hafa verið tilnefndar til Blóðdropans, þýddar á þýsku og sem stendur vinna bresk framleiðslufyrirtæki að gerð sjónvarpsþátta eftir síðustu bók hennar, Refnum. Sólveig er bæjarlistamaður Seltjarnarness 2019, fyrst rithöfunda.

Sólveig Pálsdóttir áritar bók sína.
Sólveig Pálsdóttir áritar bók sína. Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
Ljósmynd/HAG
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál