Konur úr íslenskum iðnaði fjölmenntu á aðventugleði Samtaka iðnaðarins sem haldin var á Vox Club í gær. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, og Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, höfðu framsögu sem góður rómur var gerður að. Ragnheiður Gröndal, söngkona, og Hjörtur Ingvi Jóhannsson, píanóleikari, fluttu nokkur lög, meðal annars söng Ragnheiður um jólaköttinn eins og henni einni er lagið.
Á aðventugleðinni gafst tækifæri til að kynnast, spjalla og sýna kraftinn sem konur í iðnaði búa yfir en þær starfa m.a. í hugverkaiðnaði, mannvirkjaiðnaði og framleiðsluiðnaði.