Gleðin var við völd þegar þorrablót Seltjarnarness var haldið í Félagsheimili Seltjarnarness í gær. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, lögfræðingur og saksóknari, var veislustjóri en Árni Helgason lögmaður var ræðumaður kvöldsins. Svo kom nesbúinn Ari Eldjárn og var með uppistand.
Fóru þau öll ítarlega í saumana á svokölluðum ananas-partíum á Nesinu og rúsínan í pylsuendanum var svo þegar rithöfundurinn Auður Jónsdóttir var kynnt sem leynigestur kvöldsins. Auður uppljóstraði sem kunnugt er um þetta leynilega skemmtanalíf Seltirninga og hún lét þess getið að sér litist vel á marga viðstadda - einkum og sér í lagi hóp fólks sem klætt var í þýsk lederhosen-föt.
Ingó veðurguð stjórnaði í kjölfarið brekkusöng og hljómsveitin Húdd og plötusnúðatvíeykið Gullfoss og Geysir lék fyrir dansi.
Meðal gesta voru Gísli Örn Garðarsson leikari, Sigríður Heimisdóttir hönnuður, Ragnhildur Gísladóttir og Birkir Kristinsson og Lilja Pálmadóttir. Magnús Geir Þórðarson, fyrrverandi útvarpsstjóri, og Stefán Eiríksson, eftirmaður hans, tóku tal saman.
Leikstjórinn Reynir Lyngdal og Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona voru einnig í salnum, sömuleiðis Indriði Sigurðsson, fyrrverandi knattspyrnumaður, Guðrún Tinna Ólafsdóttir og Karl Pétur Jónsson, Pétur Blöndal og Ágúst Gylfason, þjálfari karlaliðs Gróttu í knattspyrnu.
Eins og sjá má á myndunum var mikið fjör enda er Seltjarnarnes mikill partíbær!