Brynhildur og Heimir í essinu sínu

Brynhildur Guðjónsdóttir, Kristín Ögmundsdóttir, Pétur Heimisson, Sigurður Haraldsson, Kristín Eysteinsdóttir, …
Brynhildur Guðjónsdóttir, Kristín Ögmundsdóttir, Pétur Heimisson, Sigurður Haraldsson, Kristín Eysteinsdóttir, Katrín Oddsdóttir og Heimir Sverrisson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir

Það var líf og fjör í Borgarleikhúsinu þegar stykkið Útlendingurinn var frumsýnt á föstudaginn. Verkið er eftir Friðgeir Einarsson en Pétur Ármannsson leikstýrði. Með hlutverkin í sýningunni fara höfundur verksins og tónlistarmaðurinn Snorri Helgason. Mikil stemning og eftirvænting var í loftinu þegar verkið var frumsýnt eins og sést á myndunum. Borgarleikhússtjórinn Brynhildur Guðjónsdóttir lét sig ekki vanta og heldur ekki kærasti hennar, Heimir Sverrisson leikmyndahönnuður. 

„Árið 1970 fannst kvenmannslík í Ísdal rétt fyrir utan Bergen í Noregi. Konan var alls ekki búin til útvistar og í farangri hennar fundust meðal annars hárkollur og ýmis dulargervi. Við eftirgrennslan lögreglu kom í ljós að hún hafði ferðast vítt og breitt um Evrópu á fölsuðum skilríkjum, en hvorki tókst að upplýsa hver hún var, hvaðan hún kom né hvað í ósköpunum hún var að gera í Bergen.

Í gegnum tíðina hefur líkfundurinn vakið bæði forvitni og umtal í Noregi og um heim allan, en þrátt fyrir ótal kenningar hefur engum tekist að leiða til lykta hvað gerðist djúpt inni í Ísdal og hvað dró þessa útlensku konu til dauða. En það gæti breyst þegar annar útlendingur fer að grafast fyrir um málið.

Þegar íslenskur sviðslistamaður, Friðgeir Einarsson, flytur til Bergen, lætur hann heillast af ráðgátunni og gerir sitt besta til að upplýsa hana. En kannski ekki á þann hátt sem búast hefði mátt við. Friðgeir er hvorki lögreglumaður, né með reynslu af rannsóknarstörfum, en telur sig hafa ákveðna innsýn inn í hugsunarhátt konunnar. Hann er jú aðkomumaður, rétt eins og hún var.

Útlendingurinn er skandínavískt raunsæisglæpadrama þar sem mál „Ísdalskonunnar“ er nálgast á frumlegan hátt og nýjar kenningar dregnar fram í dagsljósið. Annað verkið frá sama listræna teymi og setti upp verðlaunasýninguna Club Romantica, en það var fyrsti hluti þessa ráðgátuþríleiks. Tónlist verksins er samin af Snorra Helgasyni og flutt á sviðinu af honum sjálfum,“ segir um sýninguna á vef Borgarleikhússins. 

Guðlaug Jakobsdóttir, Hilmar Oddsson, Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir og Guðrún Lára …
Guðlaug Jakobsdóttir, Hilmar Oddsson, Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir og Guðrún Lára Pétursdóttir. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Karólína Sigurðardóttir Sigríður Sveinsdóttir og Erna Sif Þorkelsdóttir.
Karólína Sigurðardóttir Sigríður Sveinsdóttir og Erna Sif Þorkelsdóttir. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Ólöf Sverrisdóttir og Guðrún Vera.
Ólöf Sverrisdóttir og Guðrún Vera. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Guðrún Haraldsdóttir og Oddur Ólafsson.
Guðrún Haraldsdóttir og Oddur Ólafsson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson.
Álfrún Helga Örnólfsdóttir og Friðrik Friðriksson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Kári Gíslason og Magnús Þór Þorbergsson.
Kári Gíslason og Magnús Þór Þorbergsson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Steinar Gauti og Dagur B. Eggertsson.
Steinar Gauti og Dagur B. Eggertsson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Kjartan Ragnarsson, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Örólfur Thorsson og Margrét Þóra …
Kjartan Ragnarsson, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir, Örólfur Thorsson og Margrét Þóra Gunnarsdóttir. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Ingunn Ásdísardóttir. Silja Aðalsteinsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Kristján Jóhann Jónsson.
Ingunn Ásdísardóttir. Silja Aðalsteinsdóttir, Dagný Kristjánsdóttir, Kristján Jóhann Jónsson. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Hjörtur Jóhann, Brogan Davison, Pétur Ármannsson og Brynja Björnsdóttir.
Hjörtur Jóhann, Brogan Davison, Pétur Ármannsson og Brynja Björnsdóttir. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
Linda Blöndal, Börkur Gunnarsson, Sólveig Ólafsdóttir og Huld Ingimarsdóttir.
Linda Blöndal, Börkur Gunnarsson, Sólveig Ólafsdóttir og Huld Ingimarsdóttir. mbl.is/Elsa Katrín Ólafsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál