Margrét Örnólfs og Steinunn Ólína geislandi glaðar

Margrét Örnólfsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Margrét Örnólfsdóttir og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenska kvikmyndin Hvernig á að vera klassa drusla var forsýnd í vikunni en myndin er frumsýnd í kvöld.

Myndin fjallar um Karen sem er lífsreynd sveitapía sem kemur á vel pimpaða bílnum sínum að sækja vinkonu sína, Tönju, sem er fálát borgarsnót. Á þessu augnabliki er Tanja að hætta með kærasta sínum og fara þær tvær saman út á land þar sem þær hyggjast vinna á stóru sveitabýli yfir sumarið. Tanja á erfitt með sig eftir sambandsslitin og virðist strax sjá eftir ferðinni en þegar á býlið er komið fellur hún fljótt fyrir myndarlegum sveitapilti þar á bæ.

Hins vegar þegar tilraunir hennar til að heilla piltinn upp úr skónum misheppnast herfilega byrjar hún að dást að því hvernig Karen virðist geta sofið hjá hverjum sem er án væntinga eða eftirmála.

Tanja biður því Karen að kenna sér að vera eins og hún. Kenna henni hvernig á að vera klassa drusla.

Aðalleikarar myndarinnar eru Ásta Júlía Elíasdóttir, Ylfa Marín Haraldsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Bachmann og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Ólöf Birna Torfadóttir leikstýrði myndinni. 

Þorbjörg Marinósdóttir og Guðbjörg Birgisdóttir.
Þorbjörg Marinósdóttir og Guðbjörg Birgisdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Kristbjörn Hilmir Kjartansson, Arndís Ey Eiríksdóttir og Dagný Harðardóttir.
Kristbjörn Hilmir Kjartansson, Arndís Ey Eiríksdóttir og Dagný Harðardóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Konni Gotta, Rúnar Vilberg, Orri Ingólfsson og Ólöf Birna Torfadóttir.
Konni Gotta, Rúnar Vilberg, Orri Ingólfsson og Ólöf Birna Torfadóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Ylfa Marín Haraldsdóttir, Ólöf Birna Torfadóttir og Ásta Júlía Elíasdóttir.
Ylfa Marín Haraldsdóttir, Ólöf Birna Torfadóttir og Ásta Júlía Elíasdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál