„Ég vissi í kvöld til hvers Þjóðleikhúsið var byggt“

Héðinn Unnsteinsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors fögnuðu sýningu …
Héðinn Unnsteinsson, Unnur Ösp Stefánsdóttir og Björn Thors fögnuðu sýningu númer 50 í gærkvöldi.

Þeim merka áfanga var náð í gærkvöldi í Þjóðleikhúsinu að sýningin Vertu úlfur var sýnd í 50. sinn fyrir fullu húsi! Unni Ösp leikstjóra, Héðni Unnsteinssyni höfundi bókarinnar og Birni Thors leikara verksins var fagnað ákaft að sýningu lokinni og Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri óskað þeim sérstaklega til hamingju við þetta tækifæri.

Vertu úlfur hefur er leiksýning sem hefur ratað að kviku leikhúsgesta; snert þá og hreyft við þeim á þann hátt sem aðeins framúrskarandi leiksýning getur gert. Sýningin átti upphaflega að fara á svið í Kassanum en vegna samkomutakmarkana var ekki hægt að æfa mannmargar sýningar og því hentaði vel að færa hana á Stóra sviðið.

Leikgerð Unnar Aspar Stefánsdóttur leikstjóra sýningarinnar er byggð á nýlegri sjálfsævisögulegri frásögn Héðins Unnsteinssonar Vertu úlfur! sem vakti verðskuldaða athygli og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Aðstandendur leiksýningarinnar hafa einnig leitað fanga í öðrum verkum eftir Héðin, og má þar nefna ýmsar blaðagreinar hans, svo sem greinina „Andrúmsloft á geðdeildum“, ljóð, fyrirlestra og viðtöl.

Héðinn Unnsteinsson hefur látið til sín taka á sviði geðheilbrigðismála í tvo áratugi, meðal annars sem sérfræðingur á vegum stjórnvalda og hjá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni.

„Ég vissi í kvöld til hvers Þjóðleikhúsið var byggt á sínum tíma. Það var til þess að við gætum séð sýninguna Vertu úlfur,“ sagði Elísabet Jökulsdóttir rithöfundur eftir að hún fór á sýninguna.

Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri og Björn Thors leikari.
Magnús Geir Þórðarson þjóðleikhússtjóri og Björn Thors leikari.
Björn Thors fer með hlutverk Héðins Unnsteinssonar í verkinu.
Björn Thors fer með hlutverk Héðins Unnsteinssonar í verkinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál