Play fagnaði góðu gengi með glæsiteiti

Birgir Jónsson, Jakob Frímann Magnússon og Magnús Ármann.
Birgir Jónsson, Jakob Frímann Magnússon og Magnús Ármann. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íslenska flugfélagið Play fagnaði því með pomp og prakt að vera búið að ná mörgum góðum áföngum upp á síðkastið. Einn af þeim var jómfrúarferð félagsins sem farin var í gær. Teitið var haldið á Nauthóli þar sem boðið var upp á rauða kokkteila, girnilegan mat og skemmtilega stemningu. 

Birgir Jónsson forstjóri Play var sérlega ánægður og í ræðu sinni sagði hann að það væri stór áfangi að koma flugfélaginu á koppinn því ferðalagið að jómfrúarferð hefði verið langt og strangt. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ferðamálaráðherra hélt einnig tölu og sagði að það væru gleðifréttir fyrir fólk sem byggi á eyju að vera loksins komið með tvö flugfélög, sem myndi hafa jákvæð áhrif fyrir landsmenn. Sjálf játaði hún að hafa ekki farið til útlanda í 16 mánuði og hlakkaði mikið til þess að komast til heitari landa. 

Eins og sjá má á myndum Kristins Magnússonar var afar góð stemning í boðinu og mikið fjör enda fólk sérlega partíþyrst eftir langa og stranga veirumánuði. 

Baldur, Þóra og Margrét Íris Baldursdóttir.
Baldur, Þóra og Margrét Íris Baldursdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon
Guðmundur, Arnar og Heiðrún.
Guðmundur, Arnar og Heiðrún. mbl.is/Kristinn Magnússon
Kristján og Einar Örn stjórnarformaður Play.
Kristján og Einar Örn stjórnarformaður Play. mbl.is/Kristinn Magnússon
Hjörvar og Þórður Bjarnason.
Hjörvar og Þórður Bjarnason. mbl.is/Kristinn Magnússon
Eggert og Petra.
Eggert og Petra. mbl.is/Kristinn Magnússon
Friðgeir, Siggeir og Hjörvar.
Friðgeir, Siggeir og Hjörvar. mbl.is/Kristinn Magnússon
Auður, Sigríður, Sandra og Sigríður.
Auður, Sigríður, Sandra og Sigríður. mbl.is/Kristinn Magnússon
Helga Thors og Björn Ólafsson.
Helga Thors og Björn Ólafsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
Ragnhildur, Margrét og Þóra.
Ragnhildur, Margrét og Þóra. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál