Starfsfólk veitinga- og afþreyingarfélagsins Gleðipinna hélt langþráða árshátíð í Keiluhöllinni í gærkvöldi. Af þeim sökum lokuðu allir Gleðipinnastaðirnir klukkan 18.00 þann dag og Gleðipinnar komu saman og stóðu undir nafni. Mikið var um dýrðir í Keiluhöllinni, Pétur Jóhann Sigfússon móralskur leiðtogi Gleðipinna hélt ávarp, Hörður og Pétur úr Bandmönnum tróðu upp og Aron Can batt svo lokahnútinn á frábæra dagskrá.
„Gleðipinnafjölskyldan okkar er stór og falleg. Við erum alls um 400 starfsmenn af um 20 þjóðernum. Það var því dásamlegt fyrir þessa risastóru fjölskyldu að hittast loksins í heild sinni, en það hefur staðið til í heil tvö ár en aldrei tekist fyrr en nú út af sotlu,“ segir Jóhannes Ásbjörnsson, einn eigenda og talsmaður Gleðipinna en fyrirtækið rekur American Style, Shake&Pizza, Saffran, Blackbox, Aktu Taktu, Keiluhöllin, Hamborgarafabrikkan, Pítan, Rush og Djúsí.