Það var notaleg stemning í Sky Lagoon á miðvikudagskvöldið þegar bræðurnir Friðrik Dór og Jón Jónssynir héldu tónleika í baðlóninu. Gestir nutu þess að baða sig á meðan tónlistarmennirnir spiluðu skemmtileg lög.
Allur ágóði tónleikanna rann til vistheimilisins Mánabergs en það var góðgerðarfélagið 1881 sem stóð fyrir viðburðinum í samvinnu við Sky Lagoon og Tix.is. Í ár setur góðgerðarfélagið 1881 fókusinn á vistheimilið Mánaberg og önnur vistheimili sem heyra undir Barnavernd Reykjavíkur. Vistheimilin eru rekin fyrir börn sem búa við slæmar aðstæður.
Eins og sjá má á myndunum var fullt af fólki í góðu skapi á tónleikunum. Það má gera ráð fyrir að góð summa hafi safnast. Markmið söfnunarinnar í ár er að endurnýja og kaupa búnað til þess að gera vistheimilið Mánaberg hlýlegra og öruggara.