Gleðin var allsráðandi þegar íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi hélt glæsilegt kvennakvöld í hátíðasal félagsins.
Vel var mætt á kvöldið en Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og alþingismaður var veislustjóri kvöldsins. Hún bjó eitt sinn á Seltjarnarnesi og hefur sterkar taugar til bæjarfélagsins. Boðið var upp á ljúffengar veitingar frá Matarkompaní. Ræðukona kvöldsins var Sigríður Dögg Guðmundsdóttir. Eins og sjá má á ljósmyndum Jóns Svavarssonar kann kvenpeningurinn á Seltjarnarnesi að skemmta sér.