Elfar Elí setti svip sinn á teitið

Elfar Elí Schweitz Jakobsson.
Elfar Elí Schweitz Jakobsson. Ljósmynd/Helgi Sæmundur

Frumkvöðlar og sprotar framtíðarinnar komu saman á Akureyri á kynningu Gulleggsins, stærstu frumkvöðlakeppni Íslands á dögunum. Kynningin fór fram á Vamos við ráðhústorgið þar sem stjörnutvíeykið í Úlfur Úlfur gaf tóninn og trylltu lýðinn.

Vamos fylltist af sprotum, frumkvöðlum og fólki sem ganga með góðar hugmyndir í maganum til að hlýða á kynningu Gulleggsins. Gríðarleg góð stemmning myndaðist þegar öll áttu möguleika að vinna ferð suður á Masterclass Gulleggsins í janúar. Það var hann Ívar Örn Marteinsson sem vann en hann er einn stofnenda sprotans Pelliscol sem tók þátt í viðskiptahraðlunum Vaxtarými í umsjá Norðanáttar, stoðumhverfi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á Norðurlandi.

Ljósmynd/Helgi Sæmundur

Kynningar á Gullegginu fór vonum framar en Landsbankinn, KPMG, Hugverkastofa, Marel og Controlant, bakhjarlar Gulleggsins voru með eigin kynningarbása þar sem fulltrúar fyrirtækjanna voru í góðu stuði og kynntu starfsemi sína. Controlant var í fyrsta skiptið með á kynningarviðburði Gulleggsins en þau unnu Gulleggið árið 2009 og er því fyrsti bakhjarlinn sem unnið hefur Gulleggið.

Úlfur Úlfur trylltu lýðinn á Vamos á Akureyri.
Úlfur Úlfur trylltu lýðinn á Vamos á Akureyri. Ljósmynd/Kolfinna Kristínardóttir

„Við erum gríðarlega stolt af því að vera bakhjarl Gulleggsins og af því að geta gefið tilbaka og stutt við nýsköpunarsamfélagið á Íslandi. Keppnin skipar sérstakan sess í sögu Controlant, sem árið 2009 vann Gulleggið og var viðurkenningin gríðarleg hvatning fyrir stofnendur Controlant. Það var æðislegt að koma til Akureyrar og finna fyrir kraftinum í fólkinu þar, en miðað við samtölin er framtíðin heldur betur björt í nýsköpun á Íslandi, og við spennt að fá að fylgjast með og styðja við frumkvöðla framtíðarinnar,“ segir Helga Bestla Baldursdóttir og Auðbjörg Ólafsdóttir hjá Controlant.

Ljósmynd/Helgi Sæmundur

„Við erum mjög ánægð með hversu vel gekk og hvað margt mætti á kynningu Gulleggsins. Það er alltaf einstakt að koma norður á Akureyri og finna fyrir öflugu tengslaneti frumkvöðla og sprota sem brenna fyrir nýsköpun. Við hlökkum til að sjá sem flesta fyrir norðan skrá sig í Gulleggið,“ sagði Ása María Þórhallsdóttir, verkefnastjóri Gulleggsins.

Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Kolfinna Kristínardóttir
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Brynjar Pálsson og Agnes Ýr Gunnarsdóttir og frá KPMG Akureyri.
Brynjar Pálsson og Agnes Ýr Gunnarsdóttir og frá KPMG Akureyri. Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Inga Ásta Karlsdóttir og Erla Árnadóttir hjá Landsbankanum
Inga Ásta Karlsdóttir og Erla Árnadóttir hjá Landsbankanum Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ása María Þórhallsdóttir verkefnastjóri Gulleggsins.
Ása María Þórhallsdóttir verkefnastjóri Gulleggsins. Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Aðalsteinn Svan Hjelm og Stefán Freyr Jóhannsson hjá Marel.
Aðalsteinn Svan Hjelm og Stefán Freyr Jóhannsson hjá Marel. Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Auðbjörg Ólafsdóttir og Helga Bestla Baldursdóttir hjá Controlant.
Auðbjörg Ólafsdóttir og Helga Bestla Baldursdóttir hjá Controlant. Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Helga Bestla Baldursdóttir og Auðbjörg Ólafsdóttir hjá Controlant
Helga Bestla Baldursdóttir og Auðbjörg Ólafsdóttir hjá Controlant Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Freyr Friðfinnsson.
Freyr Friðfinnsson. Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
Ljósmynd/Helgi Sæmundur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál