Það var glaumur og gleði hjá Leikfélagi Akureyrar þegar söngleikurinn Chicago var frumsýndur í Samkomuhúsinu á föstudagskvöldið. Söngleikurinn er samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Marta Nordal leikstýrir verkinu en með aðalhlutverk fara Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og Þórdís Björk Þorfinnsdóttir. Eins og sjá má á myndunum var einstök stemning í húsinu þegar verkið var frumsýnt og allir í spariskapinu – enginn á röngunni.