Myndlistarkonan Sísí Ingólfsdóttir opnaði sýninguna Enginn karlaklúbbur í Hannesarholti á laugardaginn. Góð stemning var í opnuninni og kærasti Sísíar, lögreglumaðurinn Birgir Örn Guðjónsson, lét sig að sjálfsögðu ekki vanta.
Sísí sem er þekkt fyrir að sauma út afsakanir sýnir teikningar í Hannesarholti. Rétt eins og í útsaumsverkum sínum er Sísí að vinna með stöðu konunnar og frelsi hennar til að taka sér pláss. Hún nálgast efniviðinn með húmar. Í verkunum á sýningunni Enginn karlaklúbbur leikur hún sér að hlutgervingu konunnar við hlið steríótýpu hins hvíta miðaldra karlmanns.
„Þó að „réttur“ kvenna (og annarra kynjahópa) hafi vissulega skánað með áratugunum þá virðumst við enn vera háð römmum feðraveldisins, þess meingallaða kerfis sem hampar einum á kostnað annars. Þetta er ekki lengur eingöngu karlaklúbbur, nú eiga allir að fá að vera með, enda þarf alls ekki einn að falla til þess að annar geti risið,“ segir í umfjöllun um sýninguna. Sísí nálgast þessar hugmyndir sínar með húmor og notast til þess einfaldar og hreinar línur með skýru litavali. Allir græða á valdeflingu konunnar, líka miðaldra gaurinn.