Auglýsingastofan Hvíta húsið var með uppskeruhátíð á Vinnustofu Kjarval á föstudaginn var í tengslum við auglýsingahátíðina Lúðurinn. Það var einstök stemning í hópnum því auglýsingastofan sópaði stil til sín verðlaunum á hátíðinni. Auglýsingastofan fékk fimm Lúðra í ár sem þykir óvenjugott.
Þrír af þeim voru fyrir hönd Icelandair en það var í flokki prentauglýsinga, viðburðar ársins og mörkun & ásýnd.
Þá vann stofan tvo Lúðra í flokki almannaheillaauglýsinga fyrir Virk, undir herferðnni „Það má ekkert lengur“. Sú auglýsingaherferð vakti mjög mikla athygli hérlendis.