Listafólk fjölmennti á Hótel Holt á miðvikudagskvöldið þegar nýtt tónlistarmyndband við lag Snæfríðar Ingvarsdóttur var frumsýnt. Snæfríður sem hefur gert það gott sem leikkona á undanförnum árum er nú að hasla sér völl sem tónlistarkona.
Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson, kærasti Snæfríðar, var að sjálfsögðu á staðnum og fagnaði með sinni konu. Faðir Snæfríðar, leikarinn Ingvar E. Sigurðsson, var einnig á staðnum. Björn Jörundur lét sig ekki vanta og það gerðu heldur ekki Gusgus-bræður Daníel Ágúst Haraldsson og Birgir Þórarinsson.
Lagið Lilies var unnið í samstari við pródúsentinn Martein (BngrBoy) og listamanninn Sigga Kinski (takk jesú). Lagið Lilies fjallar um ást, von og nýtt upphaf. Fegurðin í gegnum erfiðleikana og hvað það þýðir að komast í gegnum þá.