Getur Ísland orðið miðpunktur listaheimsins?

Jakob Frímann Magnússon, Baltasar Kormákur Baltasarsson, Una Torfadóttir, Vigdís Másdóttir …
Jakob Frímann Magnússon, Baltasar Kormákur Baltasarsson, Una Torfadóttir, Vigdís Másdóttir og Jasper Parrott. Samsett mynd/Valgarður Gíslason

Menningar og viðskiptaráðuneytið stóð fyrir opnu málþingi um framlag menningar og skapandi greina til verðmætasköpunar á Íslandi.

Umboðsmaðurinn Jasper Parrott flutti erindi um mikilvægi listar á víðsjárverðum tímum og viðraði hugmyndir um að Ísland gæti orðið fullkominn staður fyrir alþjóðlega miðstöð listar og friðar. Parrott var umboðsmaður píanóleikarans Vladimir Ashkenazyen og er í dag umboðsmaður píanóleikarans Víkings Heiðars og Daníels Bjarnasonar tónskálds. 

Parrott benti á að landfræðileg lega landsins og herleysi gæti nýst vel fyrir þessa miðstöð og minnti gesti á leiðtogafundinn sem haldinn var hérlendis árið 1986. Sagði hann Ísland vera fullkominn vettvang fyrir áhrifafólk til að hittast og setja áherslu á hvernig stuðla megi að listsköpun og frið í heiminum, því listin dafni jú best í friði eins og allt mannkynið. Gestir tóku hugmyndafræði Parrotts vel og hlaut hann dynjandi lófatak að launum.

Vigdís Másdóttir, Anna Hildur Hildibrands og Halla Helgadóttir.
Vigdís Másdóttir, Anna Hildur Hildibrands og Halla Helgadóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason

Skýrsla Ágústs Ólafs 

Ágúst Ólafur Ágústsson hagfræðingur kynnti skýrslu sem greinir stöðu menningar og skapandi greina hérlendis. 

„Tilgangur með þessari vinnu var að fá samanburðarhæfar tölur og skilgreina tækifæri,“ segir Ágúst Ólafur og bendir á að beint framlag til menningar og skapandi greina hafi numið 3,5% af landsframleiðslu árið 2023 eða 150 milljörðum sem er litlu minna en framlag fiskveiða og fiskeldis til þjóðarbúsins sama ár eða 4%.


Á málþinginu var fluttur fjöldi erinda, meðal annars um mikilvægi þekkingarsköpunar og gagnaöflunar, almannaheillafélög í heimi menningar og listar, virði og virðismat í skapandi greinum auk þess sem hugmyndir og eldmóður gesta í pallborðsumræðum veitti kröftugan innblástur.

Baltasar Kormákur Baltasarsson og Birna Hafstein.
Baltasar Kormákur Baltasarsson og Birna Hafstein. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Stefán Eiríksson, Svanhildur Konráðsdóttir og Berglind Ólafsdóttir.
Stefán Eiríksson, Svanhildur Konráðsdóttir og Berglind Ólafsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Jasper Parrott.
Jasper Parrott. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Jasper Parrott, Sigga Heimis, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson.
Jasper Parrott, Sigga Heimis, Brynhildur Guðjónsdóttir og Ágúst Ólafur Ágústsson. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Einar Bárðarson og Margrét Eir.
Einar Bárðarson og Margrét Eir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Erla Rún Guðmundsdóttir.
Erla Rún Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Jóna Hlíf.
Jóna Hlíf. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Ágúst Ólafur Ágústsson.
Ágúst Ólafur Ágústsson. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Þóra Einarsdóttir, Gunnhildur Einarsdóttir og Fjóla Sverrisdóttir.
Þóra Einarsdóttir, Gunnhildur Einarsdóttir og Fjóla Sverrisdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Una Torfadóttir og Brynhildur Guðjónsdóttir.
Una Torfadóttir og Brynhildur Guðjónsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Lilja Dögg Alfreðsdóttir.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Lára Sóley og Áslaug Guðrúnarsdóttir.
Lára Sóley og Áslaug Guðrúnarsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir og Tinna Hrafnsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Stefán Eiríksson og Jakob Frímann Magnússon.
Stefán Eiríksson og Jakob Frímann Magnússon. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Ljósmynd/Valgarður Gíslason
Sunna Jóhannsdóttir.
Sunna Jóhannsdóttir. Ljósmynd/Valgarður Gíslason
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda