Vinsælustu kynlífstækin 2017

Ljósmynd/Getty images

Kynlífstæki ástarlífsins njóta alltaf mikilla vinsælda en það er misjafnt hvað á upp á pallborðið hjá landanum þegar kemur að slíkum gripum hverju sinni. Gerður Huld Arinbjarnardóttir er ókrýnd drottning kynlífstækjanna en hún stofnaði verslunina Blush.is 2011. Hún tók saman lista yfir 10 vinsælustu kynlífstækin 2017. 

1. Womanizer 

 

Womanizer.
Womanizer.

Womanizer hefur verið vinsælasta kynlífstækið um allan heim i tæp 3 ár. Þetta er algjörlega einstakt tæki sem samanstendur af léttu sogi og djúpum titringi. Örvunin er ólýsanleg og fullnægingin með Womanizer er ólík öllu öðru sem hún hefur upplifað. 

Létta sogið gerir það að verkum að fullnægingin verður dýpri og lengri. Womanizer er tæki sem allar konur ættu að eiga. 

2. Zumio 

Svona lítur Zumio út.
Svona lítur Zumio út.

Zumio er nýtt tæki og sló heldur betur i gegn á árinu. Tækið er hugsað fyrir þær konur sem vilja extra mikinn og djúpan kraft til að örva snípinn. Tækið er með því kraftmesta á markaðnum i dag, en þrátt fyrir gríðarlegan kraft er það nett og hljóðlátt. 

3. Echo 

 

Echo.
Echo.

Vinsælasta eggið hjá Blush 4 ár í röð er Echo. Eggið er lítið og nett, fellur vel i lófa og er auðvelt að koma á milli tveggja einstaklinga i kynlífi. Eggið hentar fullkomlega hvort sem þú ert ein eða með makanum þínum að njóta. 

4. Wendy

Wendy frá Svakom.
Wendy frá Svakom.

Það eru til nokkrar tegundir af typpahringjum frá Svakom sem hafa notið mikilla vinsælda hjá pörum. Typpahringir eru hugsaðir til að halda betri stinningu fyrir karlmenn og dýpka fullnæginguna þeirra. Að auki titra þeir og veita frábæra örvun fyrir snípinn. Hægt er að nota Wendy sem egg, fingratitrara eða typpahring. 

Wendy býður upp á margvíslega möguleika og er því um að gera að láta hugmyndaflugið ráða þegar kemur að þessu skemmtilega paratæki. 

5. Alice 

Alice – Svakom.
Alice – Svakom.

Tvöfaldur kanínutitrari sem örvar G-blettinn á sama tíma og snípinn. Titrarinn veitir kraftmikla örvun og hittir á alla réttu staðina. 

6. Dorr Foxy Bullet 

Dorr Foxy Bullet.
Dorr Foxy Bullet.

Ef þú átt að eiga eitthvert kynlífstæki þá áttu að eiga gott egg! Foxy Dorr Bulletið er fullkomið egg til að örva snípinn. Það er ódýrt, kraftmikið og 100% silicon-húðað. 

7. Nova 

Nova.
Nova.

Kúlur, eða lóð til að styrkja grindarbotninn eru nauðsynlegar fyrir þær sem vilja hafa sterkan grindarbotn. Kúlurnar hjálpa konum í baráttunni við þvagleka en þær gera líka annað. Þær auka kynhvötina og bæta næmni í leggöngum. 

8. Primo

Primo frá Svakom.
Primo frá Svakom.

Primo er hugsaður sem endaþarmstitrari, en býður upp á svo miklu miklu meira. Hann er með kraftmiklum mótor sem gerir það að verkum að hægt er að nýta hann til að örva snípinn og G-blettinn. Hann hentar báðum kynjum.

9. Amy

Amy – Svakom.
Amy – Svakom.

Nettur og fallegur titrari sem er sérhannaður með kvenlíkamann i huga til að örva G-blettinn. Amy er að sjálfsögðu endurhlaðanlegur og kemur i fallegum gjafakassa sem hægt er að nýta sem geymslubox fyrir vöruna. 

10. Tenga Twist 

Tenga Twist.
Tenga Twist.

Tenga twist er fjölnota runkmúffa fyrir karlmenn sem hefur þann eiginleika að hægt er að stjórna þéttleika múffunar með einu handtaki. Tenga Twist er ekki bara hentug i notkun heldur er hún smekkleg í útliti. Gerður Huld segir að vörur fyrir herra séu alltaf að verða vinsælli og vinsælli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál