Tekur 21 dag að breyta venjunum

Þóra Hrund Guðbrandsdóttir og Erla Björnsdóttir.
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir og Erla Björnsdóttir. mbl.is/Stella Andrea

„Vissir þú að 95% af öllu sem þú hugsar, finnur, gerir eða afrekar er niðurstaða af venjum þínum? Hvort sem það er að bursta tennurnar, þvo á þér hárið eða setja á þig farða þá eru venjur um 40% af því sem þú gerir alla daga,“ segja Þóra Hrund og Erla Björnsdóttir í sínum nýjasta pistli: 

Við sköpum okkur bæði góðar og slæmar venjur sem hafa mikil áhrif á okkar líf.  Að breyta slæmum venjum eða að skapa okkur nýjar góðar venjur getur haft gríðarlega mikil áhrif á líf okkar. Samkvæmt rannsóknum þá tekur það um 21 dag að festa nýja venju í sessi sé hún framkvæmd alla daga. Að búa til nýja  góða venju getur til dæmis gert þér kleift að bæta heilsu þína, útlit, afköst, sambönd við ástvini eða bæta þig i vinnu. Góðar venjur geta bætt líf þitt það sem eftir er.

MUNUM hefur síðastliðin þrjú ár gefið út dagbækur sem eru hannaðar með það að leiðarljósi að efla markmiðasetningu, hvetja til jákvæðrar hugsunar og hámarka tímastjórnun. Mikilvægur liður í því að ná árangri og að fylgja eftir markmiðum sýnum felst gjarnan í litlum breytingum á daglegum venjum. Það er alveg magnað hversu mikil áhrif þessar litlu breytingar geta haft. Öll erum við ólík og því misjafnt hvaða breytingar á venjum henta hverjum og einum. Sem dæmi um breytingar má nefna að hreyfa sig daglega, byrja daginn á hugleiðslu, hrósa öðrum alla daga, lesa með börnunum, taka út sykur, sleppa koffíni eftir klukkan 14 eða leggja frá sér snjallsímann kl. 21.00 á kvöldin. Allt eru þetta dæmi um breytingar sem geta haft mikil áhrif á lífsgæði og líðan.

Að skapa sér nýjar og bættar venjur getur verið mikilvægt veganesti fyrir nýtt ár og markað nýtt upphaf. Við hjá MUNUM skorum því á þig að slást í för með okkur og taka út einhverja slæma venju í þínu lífi og/eða skapa þér nýja góða venju í 30 daga. Þetta þarf alls ekki að vera mjög róttæk breyting því litlar endurteknar breytingar hafa mikil áhrif til lengri tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál