Það er mikilvægt að koma vel fyrir á fyrsta stefnumótinu. Oft er talið betra að gera eitthvað saman en að sitja bara inni í myrkrum bíósal. People fór yfir fyrsta stefnumótið hjá nokkrum stjörnupörum.
George og Amal Clooney
Í október 2013 bauð leikarinn mannréttindalögfræðingnum Amal að hitta sig í Abbey Road-hljóðverinu í London þar sem verið var að taka upp tónlist fyrir mynd sem hann var að leikstýra. Eftir það fóru þau út að borða á vinsælan stað þar sem George fékk tækifæri til að sjá hvernig hún höndlaði fjölmiðlapressuna. „Og þegar við komum út voru um 50 ljósmyndarar þar en hún höndlaði það eins og meistari,“ sagði leikarinn.
Jennifer Lopez og Alex Rodriguez
Söng- og leikkonan og hafnaboltastjarnan hittust fyrst fyrir 12 árum en fóru ekki á sitt fyrsta stefnumót fyrr en í fyrra. Parið fór út að borða á fyrsta stefnumótinu. Lopez sagði að þau hefðu hist og hún hafi aðallega hlustað á hann tala um framtíð sína. „Ég er ekki viss um að honum hafi fundist þetta vera stefnumót. Mér fannst þetta vera stefnumót,“ sagði Lopez.
Kate Hudson og Danny Fujikawa
Leikkonan og tónlistarmaðurinn þekktust áður en þau byrjuðu að hittast en hafa verið saman í rúmt eitt ár. Fujikawa fór með Hudson í fjallgöngu, Hudson segir að gangan með fjölskylduvininum hafi óvænt breyst í fyrsta stefnumót. „Ekkert gerðist á fyrsta stefnumótinu. Reyndar tók það hann nokkra mánuði að taka af skarið,“ sagði Hudson.
Goldie Hawn og Kurt Russell
Leikararnir Hawn og Russell eru búin að vera kærustupar síðan árið 1983. Fyrsta stefnumótið var fjörugt hjá þeim en þau fóru heim til Hawn eftir að hafa skemmt sér á Playboy-næturklúbbi. Hawn bjó ekki í húsinu þar sem verið var að taka það í gegn. Þau þurftu því að brjótast inn með þeim afleiðingum að löggan mætti á staðinn.
Blake Lively og Ryan Reynolds
Leikarahjónin kynntust þegar þau léku saman í myndinni Green Lantern. Fyrsta stefnumótið var þó seinna og þá varð franskur veitingastaður fyrir valinu.
Emily Blunt og John Krasinski
Krasinski sagði eitt sinn að hann hefði varla þorað að heilsa Blunt áður en hann bauð henni á stefnumót. Hann bauð henni á æfingaskotsvæði á fyrsta stefnumótinu. Blunt heillaðist af honum og giftu þau sig árið 2010.