Þetta vilja konur í rúminu

Að binda fyrir augun getur kryddað kynlífið.
Að binda fyrir augun getur kryddað kynlífið. mbl.is/Thinkstockphotos

Margt fólk á sér kynlífsdraumóra sem það deilir ekki með neinum, ekki einu sinni maka sínum. Simpatic.us gerði könnun á 2.700 notendum sínum fyrir Men's Health á draumórum fólks. Niðurstöðurnar geta gefið einhverja mynd af því hvað konur vilja í rúminu og eru kannski sumar hræddar við að viðurkenna. 

Dónatal

81 prósent þeirra kvenna sem svöruðu vildu að maki þeirra talaði oftar dónalega á meðan kynlífinu. Dónalegt tal örvar heilann en fólk á það til að gleyma hversu mikilvægur hann er í kynlífinu. 

Strippbúlla

Þetta hljómar kannski undarlega en 70 prósent þeirra kvenna sem tóku þátt sögðu að þær voru áhugasamar um að fara í nektardansstað með maka sínum. 

Kynlífsleikföng

63 prósent kvenna sögðu að þeim langaði að prófa sig áfram með fjarstýrð kynlífsleikföng. Tæpur helmingur vildi síðan að maki þeirra stjórnaði kynlífsleikfanginu þegar það væri notað á almannafæri. 

Bundið fyrir augun

Rúmlega helmingur kvenna dreymdi um að láta bind fyrir augun á sér og stunda þannig kynlíf. Að loka fyrir eitt skilningarvit eykur næmni annarra. 

Örvaðu heilann með dónatali.
Örvaðu heilann með dónatali. mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál