Konan mín er óánægð með ástkonu mína

Maðurinn segir að eiginkona hans hafi hvatt hann til að …
Maðurinn segir að eiginkona hans hafi hvatt hann til að fá sér ástkonu. mbl.is/Thinkstockphotos

Kvæntur maður sem fann sér ástkonu er í vanda og leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun.

Eiginkona mín hefur ekki áhuga á því að stunda kynlíf og meira að segja sagði mér að finna mér ástkonu, en nú er hún brjáluð yfir því að ég á eina. Mér líður illa yfir þessu öllu en ég veit ekki hvernig á að leysa úr því. Ég er of ungur til þess að hætta að stunda kynlíf. 

Ég er 46 ára og eiginkona mín 43 ára. Við höfum verið gift í 22 ár og eigum fullorðin börn. Hún missti allan áhuga á kynlífi fyrir nokkrum árum. Ég var svo pirraður að við rifumst um það og á endanum missti hún sig. „Farðu þá og finndu þér ástkonu,“ sagði hún. 

Nokkrum mánuðum seinna kom þessi gullfallega kona í heimsókn á skrifstofuna af því að við vorum að láta taka skrifstofuna í gegn. Ég bauð henni í drykk með þeirri afsökun að við þyrftum að ræða næstu skref en við byrjuðum strax að daðra. 

Við hittumst seinna í vikunni og ég bókaði hótelherbergi. Kynlífið var frábært, hún er tíu árum yngri en ég en mun reyndari þegar kemur að kynlífi. Hún var gift en átti tvo elskhuga. Annar var mjög stjórnsamur, hún segir að BDSM-kynlífið með honum hafi verið það besta sem hún hafi stundað. 

Hjónabandið hennar var búið þegar við hittumst og hún vildi hætta með báðum elskhugum sínum til þess að hitta mig, þrátt fyrir að ég hafi fundið skilaboð í símanum hennar sem létu mig efast um það. Ég velti því fyrir mér hvort ég fullnægi henni. Hún segir að hún hafi ekki borið neinar tilfinningar til elskhuganna, þetta hafi bara verið kynlíf en ég á erfitt með að trúa því. Ég elska hana en ég veit ekki með fortíð hennar og ég veit að það myndi særa eiginkonu mína, börn og vini ef ég flytti út. Ég og konan mín höfum verið að tala um að hætta saman en það er erfitt eftir svona mörg ár saman. Hún er besti vinur minn og ég treysti henni. 

Eiginkonan er ekki ánægð með mann sinn.
Eiginkonan er ekki ánægð með mann sinn. mbl.is/Thinkstockphotos

Ráðgjafanum finnst ekki skrítið að konan sé reið og efast um að hún hafi meint það þegar hún sagði honum að fá sér ástkonu. 

Konur hætta ekki að stunda kynlíf að ástæðulausu. Hættu að hitta ástkonuna á meðan þú finnur út úr kynlífinu í hjónabandinu. Ef ástkonu þinni þykir jafnvænt um þig og hún segir þá bíður hún í smá stund. 

Var kynlífið með eiginkonu þinni gott fyrir konuna þína eða var hún pirruð á því af því þú þarft að laga tæknina þína? Talið um vandamál heima fyrir. Tekur þú það sem hún gerir sem sjálfsögðum hlut?

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál