Hjónaböndin stóðust svikin

Beyoncé og Jay-Z eru enn gift.
Beyoncé og Jay-Z eru enn gift. AFP

Framhjáhald þýðir ekki alltaf að sambandinu sé lokið. Mörg pör vissulega hætta saman ef upp kemst um að annar aðilinn hafi haldið fram hjá en svo eru önnur pör sem hafa reynt að gera gott úr málunum og haldið áfram. Fræga og ríka fólkið er þar ekki undanskilið eins og Mirror fór yfir. 

Jay-Z og Beyoncé

Heimurinn fylgdist með þegar það fréttist að Jay-Z hafði haldið fram hjá Beyoncé. Tónlistarfólkið komst yfir erfiðleikana meðal annars með því að fara í hjónabandsráðgjöf. Eftir þetta eignuðust þau tvíbura og virðast sjaldan hafa verið sterkari saman. 

Bill og Hillary Clinton

Hillary Clinton var forsetafrú Bandaríkjanna þegar upp komst um samband Clintons við Monicu Lewinsky. Hjónabandið hélt engu að síður og stóð Bill þétt við hlið konu sinnar þegar hún sóttist eftir embætti forseta Bandaríkjanna. 

Bill og Hillary Clinton.
Bill og Hillary Clinton. AFP

Ozzy og Sharon Osbourne 

Sharon tók aftur við rokkaranum eft­ir erfitt tíma­bil þegar upp komst um fram­hjá­hald rokk­ar­ans. Sharon seg­ist hafa fyr­ir­gefið hon­um og endurnýjuðu þau heitin. 

Ozzy og Sharon Osbourne.
Ozzy og Sharon Osbourne. AFP

David Letterman og Regina Lasko

Letterman viðurkenndi árið 2009 að hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni sem hann hafði aðeins verið giftur í nokkra mánuði. Spjallþáttastjórnandinn sagði að sambandið hefði aldrei verið betra og hann gæti bara kennt sjálfum sér um. 

David Letterman.
David Letterman. AFP

Matthew Broderick og Sarah Jessica Parker

Árið 2008 bárust fréttir af framhjáhaldi Brodericks. Parker var sögð í rusli en hjónabandið hélt og eignuðust þau tvíbura ári seinna. 

Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick.
Sarah Jessica Parker og Matthew Broderick. AFP

David og Victoria Beckham 

Fyrrverandi aðstoðarkona Davids Beckham, Rebecca Loos, sagði frá stuttu ástarsambandi sínu við Beckham fyrir meira en tíu árum. Enn eru Beckham-hjónin saman og styðja vel við hvort annað. 

David og Victoria Beckham.
David og Victoria Beckham. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál