„Kæra Deidre, ég frétti það frá „hinni konunni“ að ég hafði haft rétt fyrir mér allan tímann með það að maðurinn minn hélt fram hjá mér þegar ég var ólétt. Nú fjórum árum seinna er ég enn að fylgjast með honum, skrifaði áhyggjufull kona til Deidre, ráðgjafa The Sun.
„Hann er 38 ára og ég er 36 ára og ólétt aftur. Ég á fjögur börn, það yngsta er bara átta mánaða. Ég vil geta notið hennar og hinna barnanna. Ég er ekki viss um að við höfum efni á að eiga annað barn. Fyrir allt þetta átti ég aldrei erfitt með að treysta. Ég er virkilega að reyna að láta sambandið ganga og hjálpa til fjárhagslega með því að fara í aukavinnu. Maðurinn minn vill að ég haldi meðgöngunni áfram. Er ég sjálfselsk með því að óska þess að meðgöngunni ljúki og ég fái frelsi aftur? Ég vil ekki fleiri börn. Ég vil vera ég sjálf aftur.“