Sögðu já þrátt fyrir ungan aldur

Angelina Jolie, Reese Witherspoon og Kim Kardashian eiga ýmislegt sameiginlegt.
Angelina Jolie, Reese Witherspoon og Kim Kardashian eiga ýmislegt sameiginlegt. Samsett mynd

Stjörnurnar í Hollywood byrja snemma að trúlofa sig enda giftir fólk sig oftar þar að meðaltali auk þess sem stjörnurnar þurfa kannski ekki jafn langan tíma til safna fyrir stóru brúðkaupi og meðalmaðurinn. 

Angelina Jolie

Leikkonan sem var síðast gift Brad Pitt giftist leikaranum Jonny Lee Miller þegar hún var 21 árs. Hjónabandið entist þó ekki og gekk skilnaðurinn í gegn fjórum árum seinna eða árið 2000. Stuttu síðar gekk hún í sitt annað hjónaband og þá með Billy Bob Thornton. 

Angelina Jolie.
Angelina Jolie. AFP

Kim Kardashian

Raunveruleikastjarnan hefur gengið í það heilaga þrisvar sinnum en þegar hún var 19 ára gekk hún í það heilaga með upptökustjóranum Damon Thomas. Thomas sótti um skilnað þremur árum seinna. 

Hár Kim Kardashian er byrjað að grána.
Hár Kim Kardashian er byrjað að grána. AFP

Hilary Duff

Barnastjarnan gekk í hjónaband með íshokkíleikmanninum Mike Comrie þegar hún var 22 ára en þá var Comrie þrítugur. Duff og Comrie skildu þó fyrir tveimur árum eftir sex ára hjónaband. 

Hilary Duff.
Hilary Duff. AFP

Dolly Parton

Söngkonan gifti sig ung en tvítug giftist hún eiginmanni sínum Carl Dean og hafa þau verið gift í 52 ár.

Dolly Parton.
Dolly Parton. AFP

Britney Spears

Söngkonan var 22 ára þegar hún gekk fyrst í hjónaband og reyndar gerði hún það tvisvar sama árið. Fyrst gekk hún að eiga æskuvin sinn Jason Alexander en hjónbandið var gert ógilt. Seinna sama ár giftist hún barnsföður sínum Kevin Federline eftir þriggja mánaða samband. 

Britney Spears.
Britney Spears. AFP

Reese Witherspoon og Ryan Phillipe

Leikarahjónin fyrrverandi giftu sig ung en Phillipe var 23 ára á meðan Witherspoon var 24 ára. Hjónin tilkynntu um skilnað sinn árið 2006 eftir sjö ára hjónaband. 

Reese Witherspoon.
Reese Witherspoon. mbl.is/AFP

David og Victoria Beckham

Hjónin trúlofuðu sig árið 1998 og giftu sig ári seinna en þá var Victoria 25 ára og David 24 ára. Þrátt fyrir allar sögusagnirnar um yfirvofandi skilnað eru hjónin enn gift. 

David og Victoria Beckham.
David og Victoria Beckham. AFP

Megan Fox

Leikkonan var bara 18 ára þegar hún byrjaði að hitta hinn þrítuga Brian Austin Green. Þau trúlofuðu sig tveimur árum seinna en giftu sig ekki fyrr en 2010 en þá var Fox 26 ára. Hjónin skildu árið 2015 en eignuðust þó sitt þriðja barn saman ári seinna. 

Megan Fox og Brian Austin Green.
Megan Fox og Brian Austin Green. AFP

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál