Trúlofuðu sig eftir örstutt kynni

Stjörnurnar trúlofuðu sig eftir stutt kynni.
Stjörnurnar trúlofuðu sig eftir stutt kynni. Samsett mynd

Það vakti athygli í síðasta mánuði að söngkonan Ariana Grande og grínistinn Pete Davidson trúlofuðu sig eftir nokkurra vikna samband. Þau eru þó ekki eina parið í heimi hinna ríku og frægu sem hefur trúlofað sig eftir stutt kynni eins og vefurinn Elite Daily rifjaði upp. 

Lamar Odom og Khloé Kardashian

Körfuboltakappinn og raunveruleikastjarnan trúlofuðu sig árið 2009, aðeins þremur vikum eftir að þau hittust. Þau giftu sig síðan níu dögum síðar og leið því aðeins um mánuður frá því þau kynntust og þar til þau voru orðin hjón. Eftir stormasamt samband skildu þau loks árið 2016. 

Lamar Odom og Khloe Kardashian.
Lamar Odom og Khloe Kardashian. AFP

Amy Schumer og Chris Fischer 

Aðeins tveimur dögum eftir að þau opinberuðu samband sitt gengu leikkonan og kokkurinn í hjónaband. 

Amy Schumer og Chris Fischer.
Amy Schumer og Chris Fischer. skjáskot/Instagram

Katy Perry og Russell Brand

Söngkonan og grínistinn trúlofuðu sig árið 2009 aðeins þremur mánuðum eftir að þau byrjuðu að hittast. Þau giftu sig árið 2010 en ári seinna sótti Brand um skilnað. 

Katy Perry og Russell Brand.
Katy Perry og Russell Brand. Getty Images

Mariah Carey og Nick Cannon

Söngkonan og grínistinn voru búin að vera saman í sex vikur þegar þau gengu í það heilaga. Þau endurnýjuðu síðan heitin á hverju ári en skildu loks árið 2014. 

Mariah Carey og Nick Cannon.
Mariah Carey og Nick Cannon. Getty Images

Britney Spears og Kevin Federline

Söngkonan bað dansara sinn, Kevin Federline, að giftast sér stuttu eftir að þau byrjuðu saman. Þau tilkynntu trúlofun sína í júlí 2004 eftir þriggja mánaða samband og giftu sig í september sama ár. Spears sótti um skilnað eftir rétt rúmlega tveggja ára hjónaband. 

Britney Spears og Kevin Federline.
Britney Spears og Kevin Federline. CHRIS PIZZELLO
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál