Sex stellingar fyrir sumarið

Kynlíf í sturtunni er sniðug hugmynd á sumrin.
Kynlíf í sturtunni er sniðug hugmynd á sumrin. mbl.is/thinkstockphotos

Sumurin eru tilvalin til þess að breyta til í svefnherberginu. Margir eru ef til vill hressari eftir D-vítamínsprautuna á Spáni eða Atlavík. Hinir sem eyða sumrinu í haustveðrinu á höfuðborgarsvæðinu geta nýtt dauða tímann í sumarfríinu í svefnherberginu. Bustle tók saman nokkrar fullkomnar stellingar fyrir sumarið. 

Hundurinn með strandbolta

Annar aðilinn er á fjórum fótum og hinn fyrir aftan, það kannast margir við þessa stellingu. Á sumrin er hins vegar tilvalið að nýta strandbolta. Mælt er með því að sá sem er á fjórum fótum leggi þunga á strandboltann en þannig má auka unað. 

Standandi í sturtunni

Það þarf ekki endilega að vera sumar til þess að stunda kynlíf í sturtunni en ef það er heitt er gott að kæla sig í sturtuklefanum. Það þarf þó að fara gætilega og passa sig á sleipum botni auk þess sem sleipiefni skemmir ekki fyrir þegar kynlíf og vatn eru annars vegar. 

Öfug kúrekastelpa í baði

Ef sturtan er ekki málið er hægt að nýta baðið. Karlmaðurinn ætti að liggja í baðinu og konan fer ofan á þannig að andlitið vísar frá manninum. 

Konan ofan á

Ef það er heitt og maðurinn á það til að svitna mjög mikið er ágætt fyrir þær konur sem vilja ekki lenda í svitarigningu að fara ofan á. Ólíkt því sem var lýst að ofan með stellinguna í baðinu snýr konan að manninum í þessari stellingu. 

Kynlíf í bílnum er góð hugmynd á ferðalaginu um landið.
Kynlíf í bílnum er góð hugmynd á ferðalaginu um landið. mbl.is/Thinkstockphotos

Sitjandi með andlitin að hvort öðru í bíl

Ef þú ert á hringferð um landið er hægt að stunda kynlíf á fleiri stöðum en bara inni í tjaldi á vindsæng. Bíllinn er tilvalinn þótt það sé reyndar mælt með fáförnum vegi. Þá getur annar aðilinn setið í bílsætinu á meðan hinn fer ofan á og snýr að hinum aðilanum. 

Standandi í sundlaug

Það eru fáir sem fá tækifæri til að stunda kynlíf í sundi á Íslandi en þeir sem leigja sér hús á Spáni með einkasundlaug ættu að nýta tækifærið. Hægt er að halla sér að sundlaugarbakkanum sem og styðja sig við hann. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál