Hans fyrrverandi vill hann aftur

Barnsmóðir kærastans sendir honum skilaboð þess efnis um að byrja …
Barnsmóðir kærastans sendir honum skilaboð þess efnis um að byrja aftur saman. Ljósmynd / Getty Images

Ung kona sem hefur áhyggjur af því kærastinn fari frá henni leitaði ráða hjá Deidre, ráðgjafa The Sun

„Kæra Deidre, fyrrverandi kærasta kærastans míns, barnsmóðir hans, hættir ekki að senda honum skilaboð og segja honum að hún vilji láta reyna á sambandið aftur vegna dóttur þeirra. Ég er 23 ára og kærastinn minn er 25 ára. Við höfum verið saman í tvö ár og erum í frábæru sambandi. Fjögurra ára dóttir þeirra er yndisleg stelpa og okkur kemur vel saman, en það er samband hans við hans fyrrverandi sem gerir mig óörugga.

Kærastinn minn fullvissar mig um og heldur því fram að hann muni aldrei fara aftur til hennar. Mig langar virkilega til þess að trúa honum af því að ég elska hann en ég get ekki  hætt að hafa áhyggjur af því hvort ég eigi að halda áfram með honum eða hætta,“ skrifaði konan. 

„Það er frábært að þér kemur vel saman við litlu stelpuna hans og það væri leiðinlegt ef  óöryggi myndi eyðileggja samband ykkar. Það er mikilvægt að hann haldi áfram að hitta dóttur sína en það þýðir ekki að honum þyki bænir barnsmóður sinnar eftirsóknaverðar. Því meir sem þú hefur þig yfir efa þinn því meira finnst honum þú aðlaðandi,“ segir ráðgjafinn. 

Kærastinn reynir að telja konunni trú um að hann vilji …
Kærastinn reynir að telja konunni trú um að hann vilji ekkert með sína fyrrverandi að hafa. Getty images
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál