7 góðar stellingar fyrir einn stuttan

Hægt er að nýta sturtuferðina á morgnana í ýmislegt.
Hægt er að nýta sturtuferðina á morgnana í ýmislegt. mbl.is/Thinkstockphotos

Stundum hefur maður ekki tíma til þess að stunda langt og rómantískt kynlíf en það þarf ekki að þýða að maður geti ekki stundað kynlíf. Hvort sem það er á morgnana, í vinnunni eða rétt áður en maður á að mæta í matarboð er gott að muna eftir nokkrum kynlífsstellingum sem virka vel fyrir einn stuttan eins og kemur fram á vef Men's Health

Standandi hundur

Í stað þess að konan komi sér fyrir á fjórum fótum stendur hún fyrir framan manninn og beygir sig fram, eins og hún væri að mynda borð með líkamanum. Gott er að hún geti stutt sig við eitthvað eins og vegg eða borð þannig að hún detti ekki fram fyrir sig. 

Sitjandi

Þessi kemur sér vel ef fólk vill stunda kynlíf í bíl eða öðrum stað þar sem ekki er mikið pláss. 

Standandi í sturtunni

Flestar nútímasturtur rúma tvær manneskjur og því tilvalið að samnýta sturtuna þegar verið er að drífa sig. Ef fólk hefur líka áhuga á að nýta tímann til þess að stunda kynlíf þá er tilvalið að konan standi upp við vegginn og lyfti upp öðrum fæti. Taka þarf með í reikninginn að sturtubotninn er sleipur og fara þarf varlega. 

Á skrifborðinu

Ef þið viljið taka einn stuttan á skrifstofunni er gott að nýta skrifborðið, auðvitað er hægt að nota eldhúsborðið heima og svo framvegis. Annar aðilinn liggur á borðinu og hinn stendur á gólfinu. 

Ef þið komist ekki upp í herbergi er hægt að …
Ef þið komist ekki upp í herbergi er hægt að nýta stigann. mbl.is/Thinkstockphotos

Í stiganum

Þessi er eins og venjulegur hundur nema gerð í stiganum. Tilvalin þegar þið eruð svo æst, eða hafið ekki tíma til þess að fara upp í svefnherbergið á efri hæðinni. 

69

Þessi er einföld og klassísk og hægt að framkvæma hvar sem er svo lengi sem að það er smá gólfpláss, eða rúm. 

Skeiðin

Það er gott að stunda smá kynlíf á morgnana til þess að vakna almennilega, flestir eru þó að drífa sig í vinnuna svo hann verður að vera stuttur. Það er því gott að rúlla sér á hliðina uppi í rúmi og stunda kynlíf í skeiðarstellingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál