Þrjár ástæður fyrir morgunkynlífi

Það er gott að byrja daginn á góðu kynlífi.
Það er gott að byrja daginn á góðu kynlífi. mbl.is/Thinkstockphotos

Margir bíða með kynlíf þangað til seint á kvöldin en þá er fólk oft og tíðum orðið of þreytt fyrir kynlíf. Gott er að stunda kynlíf á morgnana og hefur könnun sýnt að karlmenn langi helst í kynlíf á morgnana, nánar tiltekið klukkan kortér í átta á morgnana. Men's Health fór yfir nokkrar góðar ástæður fyrir því að stunda kynlíf á morgnana. 

Aukin framleiðni

Í könnun sem dýnufyrirtæki gerði á meðal þúsund einstaklinga í sambandi kom í ljós að yfir helmingur þeirra sem svöruðu fannst kynlíf á morgnana gera það afkastameira yfir daginn. Þetta er ekki út úr kú enda hefur það sýnt sig að kynlíf geri fólk ánægðara í vinnunni. 

Minni kvíði

Ef fólk er að glíma við kvíða á morgnana ætti það prófa að stunda kynlíf á morgnana. Hormón sem lætur fólk slaka á, gerir það glaðara og minnkar stress flæðir um líkamann í kynlífi. 

Testósterónið er hærra á morgnana

Testósterónið er hve hæst á morgnana sem þýðir að kynhvötin er meiri á morgnana. Það hlýtur að vera gott að stunda kynlíf þegar kynhvötin er mikil. 

mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál