Ashley Madison greinir þá sem halda fram hjá

Er maki þinn að halda fram hjá? Hvernig er samband …
Er maki þinn að halda fram hjá? Hvernig er samband hans við foreldra þína? mbl.is/Thinkstockphotos

Ef maki þinn sýnir foreldrum þínum ekki áhuga er hann líklegri til þess að halda fram hjá ef marka má framhjáhaldsvefinn fræga Ashley Madison. Vefurinn gerði könnun á 1.400 notendum sínum þar sem þetta kemur í ljós eins og Men's Health greinir frá. 

Þó svo að margir kunni vel við tengdaforeldra sína voru meirihluti þeirra sem halda fram hjá, eða 61 prósent, sem sögðust ekki nánir tengdaforeldrum sínum. 

Eru niðurstöðurnar sagðar sýna að þetta geti verið merki um áhugaleysi í hjónabandinu eða vilja til þess að vera í opnu sambandi. 

75 prósent sögðust ekki hafa áhuga á að bæta samband sitt við tengdaforeldra sína og 85 prósent þeirra framhjáhaldara sem tóku þátt höfðu ekki áhyggjur af áliti tengdaforeldra sinna á sér. 

Talsmaður Ashley Madison segir að notendur síðunnar einbeiti sér að því að halda framhjáhaldinu fyrir sig þess vegna vilji þeir skapa fjarlægð milli sín og tengdafjölskyldu sinnar. Þeir nýti frekar tímann til þess að tengja við fólk í sömu stöðu en á vefurinn hjálpar giftu fólki að halda fram hjá. 

mbl.is/Thinkstockphotos
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál