Búin að gleyma hvernig ástin er

Konan man ekki hvernig tilfinning það er að vera ástfangin.
Konan man ekki hvernig tilfinning það er að vera ástfangin. Pexels

Kona á þrítugsaldri hefur áhyggjur af tilfinningaleysi sínu og biður um ráð hjá ráðgjafa Elle. Hún segist ekki muna hvernig tilfinningin að vera ástfangin er. 

„Ég er búin að gleyma því hvernig tilfinning það er að vera ástfangin. Ég er 27 ára gömul kona sem er búin að vera einhleyp í mörg ár. Ég er búin að reyna að hitta stráka á netinu og hef hitt nokkra góða, en síðan mitt síðasta samband rann sitt skeið hef ég ekki fundið fyrir neinu - ekki einu sinni smá rómantík. Einn herramaður var sérstakur en sama hvað við reyndum fann ég ekki fyrir neinu. 

Þessi ömurlega tilfinning hefur bara versnað, en ég missti ömmu mína og köttinn minn í sama mánuði. Mér líður eins og ég sé með ískalt og svart hjarta. Þetta hljómar eins og fáránleg spurning, en hvað get ég gert til að líða eins og ég sjálf aftur? Kveðja, sú frosna.“

„Elsku frosna mín. 

Sagði einhver að þú þyrftir að vera ástfangin af karlmanni nákvæmlega núna. Geymdu hjartað bara í frystinum elskan mín. Njóttu þess að vera frjáls. Það er regla í spurningunum mínum: Einnar konu frelsi frá ást er þjáning annarrar konu að vera án ástar. Þessi regla gildir ekki um kettlinga. Kettlingar eru snilingar. Hjá kettlingum finnurðu svarið við spurningu þinni. Og það bíður þín kettlingur í Kattholti.“

Geta kettlingar bjargað öllu?
Geta kettlingar bjargað öllu? Pexels
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál