3-4 sinnum í viku góð byrjun

Jill Duggar Dillard segir góða byrjun að stunda kynlíf 3-4 …
Jill Duggar Dillard segir góða byrjun að stunda kynlíf 3-4 sinnum í viku. skjáskot/Instagram

Raunveruleikaþáttastjarnan Jill Duggar Dillard segir í nýjum pistli á vefsíðu sinni að eldurinn í hjónaböndum þurfi ekki endilega að deyja út. Hún ræðir meðal annars um mikilvægi kynlífs í hjónabandi og ráðleggur hjónum að stunda kynlíf að minnsta kosti 3-4 sinnum í viku til að halda eldinum logandi. 

Dillard er best þekkt fyrir að koma fram í raunveruleikaþáttunum 19 Kids and Counting ásamt fjölskyldu sinni. Faðir hennar er stjórnmálamaðurinn Jim Bob Duggar. Duggar og eiginkona hans eiga 19 börn og er Dillard sú þriðja í röðinni. Hún hefur áður skrifað bók um hvernig var að alast upp í svo stórri fjölskyldu. 

Hún segist hafa ákveðið að skrifa færsluna vegna þess að nýgiftum hjónum er oft sagt að neistinn muni slokkna eftir nokkur ár í hjónabandi. Hún segir að það þurfi ekki að vera raunveruleiki allra hjóna og ráðleggur fólki að fara í ráðgjöf ef það á erfitt með að vera náið maka sínum. Hún mælir einnig með að kaupa ný nærföt.

Jill ásamt eiginmanni sínum og börnum.
Jill ásamt eiginmanni sínum og börnum. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál