Við eigum öll okkar góðu daga og öll okkar slæmu daga. Stundum langar okkur ekkert meira en að eiga í lostafullum ástarlotum í svefnherberginu en stundum langar okkur bara að lesa bók og fara snemma að sofa. Í nýrri könnun voru yfir 2 þúsund karlar og konur spur hvaða mistök það teldi hitt kynið gera í kynlífi.
Stærstu mistökin sem karlar gera, samkvæmt konum
- Sleppa forleiknum
- Fá fullnægingu fyrst
- Eru klaufar
- Klæmast á óviðeigandi hátt
- Tjá sig ekki nóg eftir kynlífið
- Sofna um leið og þeir fá fullnægingu
- Gera athugasemd um holdafar konunnar
- Telja sig vita hvað hún vill
- Ákveða hvað þeir ætla að gera og hlusta ekki á hvað konan vill
- Sleppa því að tengjast tilfinningalega
Stærstu mistökin sem konur gera, samkvæmt körlum
- Vilja ekki stunda kynlíf af fyrrabragði
- Vilja alltaf stunda kynlíf með slökkt ljósin
- Gera sér upp fullnægingu
- Tala of mikið
- Biðja aldrei um neitt nýtt
- Segja hvað fyrrverandi bólfélagar gerðu í rúminu
- Of hugsa kynlíf
- Eru of feimnar
- Halda að hann sé alltaf til í að stunda kynlíf
- Hafa of miklar áhyggjur af því hvernig þær líta út
Konum finnst karlar sleppa forleiknum of oft.
mbl.is/Thinkstockphotos