Framhjáhaldsskandalar tortímdu pörunum

Arnold Schwarzenegger og Maria Shriver voru gift lengi.
Arnold Schwarzenegger og Maria Shriver voru gift lengi. mbl.is/REED SAXON

Beyoncé og Jay-Z eru kannski enn saman þrátt fyrir ótrúnað rapparans en það eru ekki öll sambönd í Hollywood sem standast álagið sem fylgir framhjáhaldi. Framhjáhöldin eru fjölmörg en sumir skandalar hafa verið stærri en aðrir eins og kemur fram á vef Cosmopolitan

Gwen Stefani og Gavin Rossdale

Söngkonan Gwen Stefani komst að því að eiginmaður hennar til þrettán ára, Gavin Rossdale, hafði haldið fram hjá með barnfóstrunni. Hún var fljót að sparka honum og er nú hamingjusöm með tónlistarmanninum Blake Shelton. 

Gwen Stefani og Gavin Rossdale.
Gwen Stefani og Gavin Rossdale. mbl.is/ANDREW WINNING

Ben Affleck og Jennifer Garner

Framhjáhald við barnfóstruna var líka upp á teningnum í tilviki leikarahjónanna Ben Affleck og Jennifer Garner. Garner sagði þó eftir að skandallinn komst í fréttir að hann hefði átt sér stað eftir að þau voru hætt að búa saman. Vildi hún meina að atvikið með barnfóstruna hefði ekki átt neinn þátt í því að þau ákváðu að skilja. 

Ben Affleck og Jennifer Garner voru gift.
Ben Affleck og Jennifer Garner voru gift. mbl.is/APF

Jude Law og Sienna Miller

Leikarinn Jude Law viðurkenndi að hafa sofið hjá barnfóstrunni þegar hann var trúlofaður leikkonunni Siennu Miller árið 2005. 

Jude Law og Sienna Miller voru par.
Jude Law og Sienna Miller voru par. mbl.is/Getty Images

Kristen Stewart og Robert Pattinsson

Twilight-stjörnurnar Kristen Stewart og Robert Pattinsson hættu saman eftir að sást til Stewart kyssa leikstjóra sinn Rubert Sanders árið 2012.

Kristen Stewart og Robert PattinsonKristen Stewart og Robert Pattinson voru …
Kristen Stewart og Robert PattinsonKristen Stewart og Robert Pattinson voru par. mbl.is/AFP

Ashton Kutcher og Demi Moore

Leikarahjónin fyrrverandi Ashton Kutcher og Demi Moore voru eitt sinn aðalparið í Hollywood en aldursmunurinn vakti mikla athygli. Árið 2015 greindi þó leikarinn Scott Eastwood frá því að Kutcher hefði haldið fram hjá Moore í heita potti með tveimur stúlkum. Hvernig vissi Eastwood það? Jú, önnur konan var kærasta hans á þeim tíma.  

Ashton Kutcher og Demi Moore.
Ashton Kutcher og Demi Moore. mbl.is/Rauters

Arnold Schwarzenegger og Maria Shriver

Eftir meira en 25 ára langt hjónaband kom í ljós að vöðvatröllið hefði átt í sambandi við húshjálpina og eignast með henni barn. 

Christina Schwarzenegger, Arnold Schwarzenegger, Patrick Schwarzenegger, Maria Shriver og Katherine …
Christina Schwarzenegger, Arnold Schwarzenegger, Patrick Schwarzenegger, Maria Shriver og Katherine Schwarzenegger öll saman komin. mbl.is/AFP

Sandra Bullock og Jesse James

Leikkonan og mótorhjólastjarnan skildu eftir að hann hélt fram hjá með nektardansmey. 

Jesse James og Sandra Bullock meðan allt lék í lyndi.
Jesse James og Sandra Bullock meðan allt lék í lyndi. mbl.is/DANNY MOLOSHOK

Tiger Woods og Elin Nordegren 

Bílslys kom upp um framhjáhald golfarans fræga en eiginkona hans komst þó að því að konurnar voru töluvert fleiri en ein. 

Hjónin Elin Nordegren og Tiger Woods.
Hjónin Elin Nordegren og Tiger Woods. mbl.is/MATT SULLIVAN
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál