Algengustu kynlífsfantasíurnar

Margir láta sig dreyma um eitthvað sérstakt í kynlífinu.
Margir láta sig dreyma um eitthvað sérstakt í kynlífinu. Pexels

Félagssálfræðingurinn Justin Lehmiller gerði rannsókn á kynlífsfantasíum fólks árið 2018 fyrir bók sína Tell Me What You Want. Yfir 4 þúsund manns tóku þátt í rannsókninni og sögðu frá kynlífsfantasíum sínum. Með bók sinni vill Lehmiller hjálpa fólki að vera opnara með hvað það vill í kynlífi og eyða skömm sem ríkir í kringum kynlífsfantasíur.

Trekant

Það kemur kannski ekki á óvart en trekant var efst á lista hjá þeim sem svöruðu spurningunum. Karlar vildu heldur stunda kynlíf með tveimur konum en konur voru mun opnari og það skipti þær ekki máli hvort það væri með tveimur körlum eða konu og karli. Þau sem voru í sambandi vildu helst að maki þeirra væri með.

BDSM

Karlar og konur virðast bæði hafa mikinn áhuga á að prófa BDSM. Konur vildu heldur vera undirgefnar á meðan karlar vildu heldur stjórna. 65% af þeim sem svöruðu vildu láta hella heitu kertavaxi yfir sig, láta flengja sig eða bíta.

Hrista upp í hlutnum

Fyrir þá sem eru í langtímasamböndum getur kynlíf orðið reglubundið og goslaust. Það kemur því ekki á óvart að þau sem voru í langtíma samböndum létu sig dreyma um að hrista aðeins upp í kynlífinu, prófa nýjar stellingar á nýjum stöðum. Sumir létu sig einnig dreyma um að stunda kynlíf með einhverjum öðrum en maka sínum, svo lengi sem draumarnir verða ekki að veruleika.

Kynlíf á almannafæri

Kynlíf á almannafæri kemst einnig á listann og þá sérstaklega hjá konum. Þær nefndu til dæmis að stunda kynlíf á skrifstofunni, í almenningsgarði eða í lyftu.

Opið samband

Margir í langtímasambandi leyfa sér að dreyma um kynlíf með einhverjum öðrum en maka sínum og enn fleiri sögðust vilja að maki þeirra myndi samþykkja það. 79% karla sögðu að þeir væru til í að vera opnu sambandi. 58% sögðust einnig vilja horfa á maka sinn stunda kynlíf með einhverjum öðrum.

Þýðingarmikið kynlíf

Það kemur kannski á óvart en er sigur fyrir rómantíkina að marga dreymir um þýðingarmikið kynlíf. Bæði karlar og konur vilja upplifa að þau séu þráð og að einhverjum finnist þau kynþokkafull.

Kynlíf með sama kyni

Meirihlutinn af þeim sem svöruðu könnuninni skilgreina sig sem gagnkynhneigð en dreymir samt sem áður um að stunda kynlíf með manneskju af sama kyni. 59% kvenna sögðust hugsa um að stunda kynlíf með annarri konu og 26% karla sögðust hugsa um að stunda kynlíf með öðrum karli.

Marga dreymir um að stunda kynlíf með manneskju af sama …
Marga dreymir um að stunda kynlíf með manneskju af sama kyni. Pexels
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál