Sex erfiðar stellingar sem brenna hitaeiningum

Ertu að brenna hitaeiningum í kynlífinu?
Ertu að brenna hitaeiningum í kynlífinu? mbl.is/Thinkstockphotos

Kynlíf kemur kannski ekki alveg í staðinn fyrir það að fara í ræktina en það þó hægt að fá ágætishreyfingu út úr kynlífi. Það skiptir máli í hvaða stellingum samfarir eru stundaðar ef markmiðið er að brenna hitaeiningum ásamt því að fá fullnægingu. Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox fór yfir nokkrar góðar stellingar fyrir gagnkynhneigða á vef Daily Mail. Heldur hún því fram að fólk geti brennt á bilinu 70 til 200 hitaeiningum ef það stundar samfarir í hálftíma. 

Hitaeiningabruninn er ekki eini kosturinn við að prófa þessar stellingar þar sem aukið blóðflæði kemur sér vel í kynlífi. Cox vill meina að regluleg hreyfing sé eins og náttúrulegt stinningarlyf fyrir karlmenn. Hún segir einnig að konur sem hreyfa sig reglulega séu með sterkari kynlöngun en aðrar konur. 

Standandi

Cox vill meina að fólk fái mikið út úr stellingu þegar kona og maður stunda kynlíf þannig að karlinn heldur á konunni og hún vefur fótum sínum utan um hann. Hún mælir með að konan láti manninn ekki um alla vinnuna og reyni að fara upp og niður sjálf. Að vera upp við vegg dregur úr áhrifum stellingarinnar ef fólk er að hugsa um hitaeiningar. 

Allt að 200 kaloríur.

Hundur með jafnvægisæfingu

Venjulega reynir hundastellingin á rass-og lærvöðva karla á meðan stellingin reynir á upphandleggsvöðva, axlir og efra bak hjá konum. Til þess að fá meira út úr stellingunni geta konur ýtt á móti manninum og reynir þá meira á miðju og lærvöðva þeirra. Hægt er að gera stellinguna enn erfiðari með því að halda jafnvægi á öðru hnénu og hinn fóturinn er beinn út frá líkamanum. Mikilvægt er að spenna alla vöðva til þess fá sem mest út úr stellingunni.  

Allt að 70 hitaeiningar.

Kona ofan á - situr á hækjum sér 

Það kannast margir við þær stellingar þegar konan er ofan á hvort sem hún snýr að andliti eða fótum bólfélaga síns. Ef hún situr á hækjum sér ofan á manninum þarf hún nánast að gera hnébeygjur til þess að stunda samfarir í stellingunni. Þetta reynir töluvert á og telur Cox að konur endist ekki í nema þrjár mínútur í stellingunni. 

Allt að 115 hitaeiningar. 

Trúboðinn og rassæfing í leiðinni

Það er ekki spennandi fyrir konu að liggja bara á bakinu og brenna ekki nema 44 hitaeiningum á meðan karlmaðurinn sem er ofan á brennir 143 hitaeiningum. Cox mælir með því karlmaðurinn krjúpi og konan komi sér í hálfgerða brú. Maðurinn getur haldið undir rassinn en ef konan er á tám með spennta rassvöðva fær hún góða magaæfingu út úr stellingunni. 

Á milli 60 og 140 hitaeiningar. 

Það er hægt að gera ýmislegt annað en að liggja …
Það er hægt að gera ýmislegt annað en að liggja bara á bakinu. mbl.is/Thinkstockphotos

Plankahjólbörur

Cox segir hjólbörustellinguna góða en þar stendur maðurinn á meðan konan er með hendur á gólfi eða rúmi og fætur utan um mitti karlmannsins á meðan hann heldur um mjaðmir hennar. Maðurinn reynir á hendur, rass og miðju en konan reynir á hendur og axlir. Til þess að gera stellinguna enn erfiðari getur konan farið niður á olnboga eins og í planka en þá þarf maðurinn að fara niður á hnén. 

Allt að 100 hitaeiningar. 

Skipt um hlutverk með hjálpartæki ástarlífsins

Ef pör vilja breyta til fær konan heilmikið út úr því, áreynslulega séð að minnsta kosti, að festa á sig gervilim og maðurinn fer niður í hundinn. Einnig reynir það heilmikið á ef maðurinn leggst niður og kona með gervilim fer á hækjur sér. 

Allt að 100 hitaeiningar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál